Barði NK í höfn í Þórshöfn í Færeyjum. Ljósm. Laufey Þóra Sveinsdóttir

Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK þann 12. júní sl. þegar skipið var á leið til heimahafnar í Neskaupstað að loknu viðhaldi og vélarupptekt í Færeyjum. Áhöfninni tókst vel að kæfa eldinn og kom færeyskt varðskip á vettvang og dró Barða til hafnar í Þórshöfn í Færeyjum þar sem skipið hefur verið síðan. Heimasíðan ræddi við Grétar Örn Sigfinnsson rekstrarstjóra útgerðar Síldarvinnslunnar og spurði hann frétta af gangi mála varðandi viðgerð á Barða eftir eldsvoðann. Grétar sagði að enn væri verið að meta skemmdir á skipinu. “Fyrir liggur að skemmdirnar eru verulegar og nú er staðan sú að verið er að þrífa vélarrúmið eftir eldsvoðann og meta skemmdir. Ljóst er að tjón á köplum er umtalsvert og annað tjón einnig. Aðalvélin slapp nokkuð vel en þó þarf að skipta út einstökum hlutum hennar. Umfang tjónsins er að verða ljósara og nú er unnið að því að skipuleggja næstu skref. Fyrir liggur að fyrsti fasi viðgerðarinnar verður unninn í Færeyjum en óljósara er hvar unnið verður í framhaldinu. Við blasir að öll vinnan verður tímafrek og erfitt að meta nákvæmlega hve langan tíma tekur að sinna hverju verkefni. Ég held að það sé nokkuð ljóst að þessi vinna tekur bróðurpartinn af komandi hausti,” sagði Grétar.