Í frystihúsi Vísis eru framleiddir fiskbitar. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Í Grindavík starfrækir Vísir bæði frystihús og salthús og er unnið úr 80 – 85 tonnum af bolfiski á dag í þessum vinnsluhúsum. Heimasíðan ræddi við Jóhann Helgason framleiðslu- og sölustjóra Vísis og bað hann um að lýsa starfseminni í stuttu máli. “Bæði frystihúsið og salthúsið eru fjölmennir tæknivæddir vinnustaðir. Í frystihúsinu starfa um 70 manns og í salthúsinu 50 – 60 manns. Í frystihúsinu eru framleiddir fiskbitar og er framleiðslan gjarnan um 500 bitar á mínútu. Hvert flak er skorið í nokkra bita sem fara á mismunandi markaði. Mikil áhersla er lögð á að fá sem nýjastan eða ferskastan fisk til framleiðslunnar. Rúmlega helmingur framleiðslunnar er fluttur út ferskur með flugi eða í gámum en hinn helmingurinn er frystur. Ferski fiskurinn er mest seldur til Frakklands, Belgíu og Bandaríkjanna en frysti fiskurinn fer til Bretlands.

Í salthúsi Vísis er framleiddur hefðbundinn saltfiskur og léttsaltaður fiskur.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Í salthúsinu fer fram hefðbundin framleiðsla á saltfiski og þar er einnig framleiddur léttsaltaður fiskur. Helstu markaðir okkar fyrir saltfiskinn er Ítalía og Spánn en hann er einnig seldur í nokkrum mæli til Portúgals og Grikklands.

Hráefnið til vinnslunnar kemur að langmestu leyti frá skipum í Síldarvinnslusamstæðunni. Við fáum afla frá línuskipunum Páli Jónssyni GK og Sighvati GK og einnig frá krókaaflamarksbátnum Fjölni GK. Þá fáum við afla frá Vestmannaeyjatogurunum Bergey VE og Vestmannaey VE og einnig frá Birtingi NK. Það hefur gengið afar vel að fá fisk frá þessum skipum og því er vinnslan bæði í frystihúsinu og salthúsinu samfelld og rekin með fullum afköstum. Í reyndinni gengur þessi starfsemi afar vel enda vel haldið utan um alla þætti starfseminnar,” sagði Jóhann.