
Sjávarútvegsfyrirtækið Vísir í Grindavík starfrækir tvær vinnslustöðvar á staðnum. Annars vegar frystihús og hins vegar salthús. Alls voru unnin rúmlega 16.700 tonn af bolfiski í vinnslustöðvunum tveimur á árinu 2025. Í frystihúsinu voru unnin rúmlega 4.700 tonn af þorski, rúmlega 3.100 tonn af ýsu og tæplega 240 tonn af ufsa. Í salthúsinu voru unnin tæplega 5.700 tonn af þorski, rúmlega 670 tonn af ufsa, tæplega 1.800 tonn af löngu og rúmlega 500 tonn af keilu.
Hráefnið til vinnslunnar kom frá eigin skipum félagsins en þau eru togarinn Jóhanna Gísladóttir GK, línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK auk krókaaflamarksbátsins Fjölnis GK. Þá var einnig tekið á móti afla frá Vestmannaeyjatogurunum Bergey VE og Vestmannaey VE og Seyðisfjarðartogaranum Gullver NS. Öll þessi skip eru gerð út af félögum í Síldarvinnslusamstæðunni og Vísir er einnig hluti af henni. Auk þess afla sem ofangreind skip fluttu að landi voru tæplega 562 tonn keypt á markaði til vinnslu í frystihúsi og salthúsi Vísis á síðasta ári.
Sigurður Jónsson rekstrarstjóri salthúss Vísis segir að árið 2025 hafi verið gott hvað vinnsluna varðar. ”Það eru um 60 manns sem starfa í salthúsinu eða sinna störfum sem tengjast því. Í þessum hópi eru margir mjög reyndir starfsmenn og það hafa litlar breytingar átt sér stað á starfsmannahópnum þrátt fyrir þá eldgosatíð sem við höfum þurft að upplifa. Vinnuaflið er semsagt mjög stöðugt. Þá eru alltaf fleiri og fleiri starfsmenn að setjast að í Grindavík á ný sem er mjög jákvætt. Það urðu tvö eldgos á árinu 2025 og samtals féll niður vinna hjá okkur í um tvo daga vegna þeirra. Hráefni hefur borist til okkar jafnt og þétt og meira að segja var sumarfríið stytt vegna þess að þörfin fyrir að halda vinnslu gangandi var mikil. Við gerum okkur vonir um að eldgosahrinunni sé að ljúka og ég held að megi færa góð rök fyrir því að bjart sé framundan hjá okkur,” sagði Sigurður.

Ómar Enoksson rekstrarstjóri frystihússins Vísis var einnig ánægður með starfsemina á árinu 2025. ”Í frystihúsinu voru samtals unnin tæplega 8.100 tonn á árinu 2025 og það er ekki annað hægt en að vera sáttur. Náttúruhamfarir höfðu afar lítil áhrif á starfsemina og hráefnisskortur var mjög sjaldgæft vandamál. Í frystihúsinu starfa um 70 manns og það er að langmestu leyti sama fólkið og vann hér áður en hamfarirnar hófust. Ég tel að um 90% af núverandi starfsfólki í frystihúsinu hafi starfað hér áður en til rýmingar bæjarins kom. Frystihússtarfsfólkið er í allríkum mæli að flytja til bæjarins á ný og á það sérstaklega við um barnlaust fólk. Ég er sannfærður um að þegar verður boðið upp á þjónustu leikskóla og grunnskóla mun fólki fjölga mjög en vænst er til þess að slík þjónusta verði í boði frá og með næsta hausti. Hvað starfsemi frystihússins varðar lítur allt vel út og reynslan frá árinu 2025 hlýtur að stuðla að bjartsýni hvað varðar áframhald starfseminnar,” sagði Ómar.