Landað var úr línuskipinu Sighvati GK í heimahöfn í Grindavík í gær. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskipið Sighvatur kom til heimahafnar í Grindavík í gærmorgun að lokinni ágætri veiðiferð. Afli skipsins var 105 tonn og var uppistaða aflans langa og þorskur. Heimasíðan hafði samband við Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra og spurði hvar hefði verið veitt. ”Við vorum í Eyjafjallasjónum, mest á Hólshrauni. Lagnirnar í túrnum voru fimm talsins og var aflinn svipaður í hverri lögn. Það var blíðuveður allan túrinn og ég held að megi fullyrða að þetta hafi veðurfarslega verið besti túr frá áramótum. Það er ekki hægt að vera annað en sáttur við þennan túr,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Sighvatur hélt á ný til veiða í gærkvöldi og var gert ráð fyrir að reyna veiðar í Síðugrunnshólfi og Ingólfshöfðahólfi en þau hafa lengi verið lokuð.