
Uppsjávarveiðiskipin Beitir NK og Börkur NK sigldu út úr Norðfjarðarhöfn í gær áleiðis á kolmunnamiðin í færeyskri lögsögu. Barði NK mun hins vegar væntanlega halda til loðnuleitar um eða upp úr miðjum mánuði.
Ekki er enn búið að ganga endanlega frá samningi um kolmunnaveiðar íslenskra skipa í færeyskri lögsögu en gert er ráð fyrir að það gerist fljótlega.
Kolmunnaveiðar fara nú fram suðaustur af Færeyjum og hefur veiðin gengið vel síðustu daga.