Gullver NS heldur til veiða frá Seyðisfirði. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver NS var staddur djúpt út Glettingi í morgun á landleið þegar heimasíðan sló á þráðinn til Þórhalls Jónssonar skipstjóra. Landað verður úr skipinu í dag en aflinn er 101 tonn, mestmegnis ýsa og þorskur en einnig er dálítið af karfa og ufsa. Þórhallur segir að túrinn hafi hafist á ufsaleit. “Við byrjuðum á að leita að ufsa víða án mikils árangurs. Ýsuna fengum við síðan á Stokksnesgrunni og þorskinn á Verkamannabankanum. Verkamannabankinn er alveg við færeysku miðlínuna. Það var veðurblíða allan túrinn. Nú verða veiðarfærin tekin í land og skipið heldur síðan til Færeyja í vélarupptekt. Reiknað er með að upptektinni ljúki undir mánaðamót, en síðan er ráðgert að haldið verði á ný til veiða 12. ágúst. Það er því frí framundan hjá skipshöfninni,” segir Þórhallur.