
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK hafa verið að gera það gott. Páll Jónsson landaði í Grindavík í gær að loknum athyglisverðum rannsóknatúr og Sighvatur kom til Grindavíkur um miðnætti að lokinni eftirminnilegri veiðiferð. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði nánar út í veiðarnar. Benedikt Jónsson á Páli Jónssyni sagði að túrinn hefði verið skrítinn. “Við fórum og veiddum í lokuðum reglugerðarhólfum fyrir sunnan land. Þessi hólf hafa verið lokuð í 15 – 25 ár og mér skilst að ástæða lokunarinnar hafi verið sú að þarna hafði orðið vart við mikið af smákeilu. Með okkur í för voru tveir starfsmenn Hafrannsóknastofnunar. Í túrnum veiddum við í þremur hólfum, í Ingólfshöfðahólfi, í Síðugrunnshólfi og í Kötlugrunnshólfi. Við byrjuðum á að leggja hálfa lögn í Ingólfshöfðahólfinu en síðan voru lagðar tvær lagnir í hinum hólfunum tveimur. Það var sérstaklega erfitt að eiga við þetta í Ingólfshöfðahólfinu enda botninn þar einstaklega vondur. Í Síðugrunnshólfinu fengum við 12 tonn í fyrri lögninni og 16 tonn í seinni. Í Kötlugrunnshólfinu fékkst virkilega góður afli, 36 tonn í fyrri lögninni og 26 í þeirri seinni. Um 70% aflans var keila og um 20% langa en dálítið af ýsu og þorski fékkst með. Í öllum hólfunum var dálítið bras bæði vegna botns og straums. Heildaraflinn í túrnum var 105 tonn og fiskurinn sem fékkst var stór og fallegur, ekki síst keilan. Við í áhöfninni erum mjög sáttir við þennan túr og ég vona að þeir frá Hafró séu það einnig. Við gerum okkur vonir um að þessi hólf verði opnuð og línuskip megi fiska þarna í framtíðinni,” sagði Benedikt.
Óli Björn Björgvinsson á Sighvati var mjög ánægður með veiðiferðina. ”Við vorum í Héraðsflóadýpinu og þar var algjör veisla. Þarna var sannkölluð dúndurveiði. Ég man ekki eftir því að ná að fylla skipið í þremur lögnum og til viðbótar skal nefnt að um mjög góðan fisk er að ræða. Þetta er mest þorskur og er meðalþyngdin um fimm kíló. Í fyrstu lögninni fengum við hvorki meira né minna en 55 tonn og ég man ekki eftir slíku. Í næsta túr eigum við að taka bland og þá verður líklega veitt fyrir sunnan land. Vonandi verður þá gott veður og straumlétt,” sagði Óli Björn.