Beitir NK kemur til hafnar í Neskaupstað í morgun. Ljósm. Eiríkur Karl Bergsson

Beitir NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.650 tonn af loðnu. Aflinn fékkst í tveimur köstum grunnt á miðri Meðallandsbugt. Rætt var stuttlega við Tómas Kárason skipstjóra og hann spurður út í loðnugönguna sem þarna er veitt úr. “Þarna var mikið að sjá. Um er að ræða þriggja til fjögurra mílna loðnulengju svo magnið er töluvert. Þessi ganga fer mun grynnra en fyrri gangan sem veitt hefur verið úr. Skipin sem þarna voru að veiðum voru að fá góð köst. Fyrra kastið okkar var 730 tonn og hið síðara 930 tonn. Við komum til hafnar klukkan níu í morgun og það verður byrjað að landa strax eftir hádegi. Þessi loðna er mjög falleg og má fullyrða að hér sé góð Japansloðna á ferðinni. Menn eru afskaplega glaðir að fá þessa nýju göngu og Barði NK var byrjaður að veiða þarna í morgun. Þessi ganga er mikið fagnaðarefni,” sagði Tómas Kárason.