Jóhanna Gísladóttir GK landar í Hafnarfirði í dag. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogarinn Jóhanna Gísladóttir GK kom með fullfermi til Hafnarfjarðar í gær og landað er úr skipinu í dag. Skipstjóri í veiðiferðinni var Sindri Kristjánsson og var þetta hans fyrsti túr í skipstjórastólnum á þessu skipi en Sindri hefur starfað í um áratug hjá Vísi. Heimasíðan ræddi stuttlega við Sindra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. “Áhersla var lögð á karfaveiði og við vorum í Nætursölunni og í austurhorni Víkurálsins. Veiðin gekk býsna vel en við fengum í skipið á rétt innan við tveimur sólarhringum. Þetta gat í reyndinni ekki gengið mikið betur. Það var aðeins kaldi þegar út var komið en síðan var gott veður. Við komum til Hafnarfjarðar í gærmorgun og það er verið að landa í dag. Haldið verður til veiða á ný síðdegis í dag,” sagði Sindri.