Suðurhlið byggingarinnar. Nú er unnið að ísetningu nýrra glugga í aðra og þriðju hæð húsins. Ljósm. Guðmundur Helgi Sigfússon

Framkvæmdir við skrifstofuhúsnæði Síldarvinnslunnar að Hafnarbraut 6 í Neskaupstað ganga samkvæmt áætlun. Þriðja hæðin var byggð ofan á húsið og önnur hæðin verður endurinnréttuð. Á neðstu hæð hússins eru síðan skrifstofur og verslun SÚN.

Guðmundur Helgi Sigfússon er umsjónarmaður framkvæmdanna og hitti heimasíðan hann að máli. Fram kom hjá Guðmundi að framkvæmdirnar hefðu hafist í maímánuði og væri gert ráð fyrir að þeim lyki í marsmánuði næstkomandi. Á meðan framkvæmdirnar standa yfir hefur skrifstofufólk Síldarvinnslunnar starfsaðstöðu í fiskiðjuveri fyrirtækisins og einnig í Múlanum samvinnuhúsi, en Múlinn er skrifstofu- og stofnanaklasi. Fram kom að Guðmundur er mjög ánægður með gang framkvæmdanna. ”Nú er unnið að ísetningu nýrra glugga í aðra og þriðju hæð hússins. Þá er einnig hafin uppsetning milliveggja af fullum krafti og jafnframt unnið að klæðningu útveggja að innan. Einangrun og klæðning hússins utanvert gengur vel og lokafrágangur á þaki er hafinn. Það fer ekkert á milli mála að hér verður um flott hús að ræða sem mun henta vel fyrir þá starfsemi sem þar verður. Þá mun húsið verða mjög áberandi í miðbæ Neskaupstaðar og ég tel að það verði til prýði og öllum til sóma,” sagði Guðmundur Helgi.

Norðurhlið byggingarinnar. Ljósm. Guðmundur Helgi Sigfússon
Hafin er uppsetning milliveggja á þriðju hæð húsins. Ljósm. Guðmundur Helgi Sigfússon