Landað var úr systurskipunum Vestmannaey og Bergey í Neskaupstað í gær. Ljósm. Hákon Ernuson

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir í Neskaupstað í gær að loknum stuttum veiðiferðum. Bæði skip voru með tæplega 50 tonn eftir að hafa verið rúma tvo sólarhringa að veiðum og var aflinn mest þorskur og ýsa. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði frétta. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að upp á síðkastið hefði veður truflað veiðarnar verulega. “Við fórum út seinni part mánudags að afloknu brælustoppi. Haldið var norður á Gletting en þar var enginn kraftur í veiðinni. Síðan var tekið eitt hol í Seyðisfjarðardýpinu og loks endað á Gerpisflaki. Veðrið upp á síðkastið hefur verið þreytandi en þó var þokkalegasta veður síðasta daginn í túrnum. Við munum halda til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lýkur,” sagði Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að skipin hefðu verið kölluð inn vegna mannaskipta og eins vegna þess að fisk hefði vantað í vinnsluna hjá Vísi í Grindavík. ”Við byrjuðum þennan túr á Glettingi og þar veiddist dálítið af þorski og ýsu til að byrja með. Síðan var túrinn kláraður á Gerpisflakinu. Það hefur sannast sagna verið bölvuð ótíð að undanförnu en nú stefnir í þokkalegasta veður og eðlilega eru menn fegnir því. Annars eru menn brattir hér um borð og láta ekki smá bræluskít hafa alltof mikil áhrif á sig,” sagði Jón.