
Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE landa í Neskaupstað um þessar mundir. Bergey landaði um 60 tonnum í gær og Vestmannaey landar fullfermi í dag. Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórunum og grennslaðist fyrir um gang veiðanna.
Jón Valgeirsson á Bergey sagði að þeir hefðu verið kallaðir inn vegna þess að fisk hefði vantað í vinnsluna hjá Vísi í Grindavík. ”Þetta var stuttur túr. Við byrjuðum á að reyna við ýsu á Gerpisflakinu og fengum þar blöndu af ýsu og þorski. Síðan var keyrt í Litladýpið og þar voru tekin tvö þorskhol. Við vorum heppnir með veður í túrnum en við biðum af okkur brælu í Neskaupstað áður en haldið var til veiða,” sagði Jón.
Egill Guðni Guðnason á Vestmannaey var ánægður með veiðiferðina. ”Það eina sem skyggði á þennan túr var ýsuveiðin. Við reyndum við ýsu með of litlum árangri en fengum þó um 30 tonn af henni. Veitt var á Gerpisflaki, Skrúðsgrunni, Berufjarðarál og Breiðdalsgrunni og leitin að ýsunni var stöðug. Það var þokkalegasta veður í túrnum en nú er bræla framundan og ég reikna með að ekki verði farið út á ný fyrr en á föstudag vegna veðursins,” sagði Egill Guðni.