
Ísfisktogarar Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, Vestmannaey VE og Bergey VE, lönduðu báðir á Djúpavogi í gærmorgun að lokinni stuttri veiðiferð. Afli hvors skips var um 60 tonn. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk fréttir. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, byrjaði á að bölva veðurfarinu. “Ég veit ekki hvað það á að þýða að bjóða okkur upp á skítaveður um mánaðamótin maí – júní. Túrinn hjá okkur tók rúmlega þrjá sólarhringa og það var hundleiðinlegt veður allan tímann, sérstaklega þó framan af. Aflinn var blandaður; ýsa, þorskur, skarkoli og steinbítur. Við hófum veiðar við Hvalbakinn, síðan var haldið í Berufjarðarál, eftir það lá leiðin í Lónsbugtina og loks aftur í Berufjarðarálinn,” sagði Egill Guðni.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Vestmannaey, kvartaði einnig undan veðrinu í upphafi túrsins. “Veðrið var síður en svo skemmtilegt í upphafi veiðiferðar en síðan skánaði það nokkuð. Aflinn hjá okkur var mest þorskur og ýsa. Við hófum veiðar í Berufjarðarálnum en síðan héldum við okkur við Hvalbakinn. Nú var landað á Djúpavogi enda stutt að fara þangað,” sagði Jón.
Togararnir héldu til veiða á ný strax að löndun lokinni og er um að ræða síðasta túr fyrir sjómannadag. Gert er ráð fyrir að þeir landi í heimahöfn í Eyjum á fimmtudagsmorgun.