Vestmannaey VE. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogararnir Bergur VE og Vestmannaey VE eru báðir að landa fullfermi í Eyjum í dag. Túrinn var einungis tveir sólarhringar höfn í höfn hjá þeim báðum. Skipin voru að veiðum á sömu slóðum. Þau byrjuðu á Sjötíu faðma blettunum vestur af Surti og enduðu á Sannleiksstöðum út af Þorlákshöfn. Skipstjórarnir, Jón Valgeirsson á Bergi og Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey, voru mjög sáttir við veiðina en báðir töluðu um að vertíðin væri að enda. Skipin halda til veiða á ný á morgun.