
Vestmannaeyjaskipin, Vestmannaey VE og Bergey VE, eru bæði að landa góðum afla í dag. Vestmannaey er að landa 65 tonnum af karfa í Grindavík og Bergey er að landa fullfermi í Eyjum og er aflinn mest ýsa. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og heyrði um gang veiðanna. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að túrinn hefði gengið vel. “Þetta er mest gullkarfi sem við erum með. Aflinn fékkst að mestu í Skerjadýpinu og í Sparisjóðnum en við enduðum síðan á Eldeyjarbankanum. Þetta er þriðji túr hjá okkur eftir sumarstopp en við lönduðum fullfermi af ýsu í Eyjum á sunnudaginn. Ýsuna fengum við á Brekableiðunni. Veiðin eftir að sumarstoppinu lauk hefur verið býsna góð hjá okkur og hér um borð eru menn bara sáttir,” sagði Birgir Þór.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, lét einnig vel af veiðinni. ”Við vorum að koma úr okkar fyrsta túr eftir sumarstopp og hann gekk býsna vel. Við fórum út á sunnudag og veiddum fyrst ýsu á Brekableiðunni og síðan var farið á Pétursey og Vík þar sem fékkst ýsa blönduð þorski. Þetta gekk alveg ágætlega og veðrið var gott megnið af túrnum, en við fengum smávegis kaldaskít í lokin,” sagði Jón.
Bæði skip munu halda til veiða á ný fljótlega að löndun lokinni.