
Frá lokum loðnuvertíðar hafa staðið yfir viðamiklar og kostnaðarsamar framkvæmdir í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Bæði hefur verið unnið að umbótum á starfsmannaaðstöðu og framleiðslubúnaði. Mikill fjöldi iðnaðarmanna hefur starfað við framkvæmdirnar og um þessar mundir er keppst við að gera fiskiðjuverið tilbúið fyrir makrílvinnslu sem gæti hafist í næstu viku.
Heimasíðan hitti Geir Sigurpál Hlöðversson rekstrarstjóra fiskiðjuversins að máli og bað hann um að lýsa framkvæmdunum í stuttu máli. “Breytingarnar á starfsmannaaðstöðinni eru umfangsmiklar og verður hún að öllu leyti betri og vistlegri að þeim loknum. Verið er að ljúka við nýtt og glæsilegt eldhús og eins hefur verið gerður stór matsalur og rúmgóð og notaleg setustofa. Öll aðstaða fyrir starfsfólkið mun taka stakkaskiptum með þessum breytingum og verða hin besta. Í fiskiðjuverinu er unnið að margs konar endurbótum á framleiðslubúnaði og skal ég nefna þær helstu hér. Í fyrsta lagi skal geta um nýja vacuumpökkunarlínu sem verið er að setja upp og kemur hún til viðbótar við þær sem fyrir eru. Þá skal nefna uppsetningu á nýjum búnaði til að auka sjálfvirkni við brettun en þegar við tölum um brettun er átt við röðun kassa á bretti áður en þeir fara yfir í frystigeymslu. Fyrir utan þetta er unnið að endurbótum á aðstöðu við flokkun og uppsetningu á nýrri og afkastamikilli pönnuþvottavél. Allar þessar framkvæmdir hafa gengið vel og verður spennandi að hefja makrílvinnsluna sem er á næsta leiti,” sagði Geir Sigurpáll.
