Polar Amaroq kom með fyrstu loðnu vertíðarinnar til Neskaupstaðar í morgun. Ljósm. Smári Geirsson

Grænlenska skipið Polar Amaroq kom í morgun til Neskaupstaðar með 340 tonn af loðnu. Um er að ræða fyrstu loðnuna sem veidd er á vertíðinni. Geir Zoёga skipstjóri sagði að aflinn hefði fengist í tveimur holum um 55 mílur frá Norðfjarðarhorni. “Við héldum út frá Neskaupstað og það kom okkur á óvart að rekast á loðnu strax þarna þannig að við leituðum ekki neitt. Þetta er fallegasta loðna og hentar ábyggilega vel til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Hér um borð eru menn afar glaðir og það var afar jákvætt að hitta svona fljótt á loðnuna. Undir lokin urðum við varir við hvali sem þarna voru að djöflast í loðnunni en þeir fylgja henni ávallt. Nú fylgjast menn spenntir með loðnuleitinni sem er að hefjast og vonandi mun hún skila jákvæðri niðurstöðu,” sagði Geir Zoёga.

Þrjú veiðiskip létu úr höfn í Neskaupstað í gær og héldu til loðnuleitar. Á myndinni er Polar Ammassak að láta úr höfn og Barði NK liggur við bryggju og hélt til leitar skömmu síðar. Ljósm. Eiríkur Karl Bergsson

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, sagði að ávallt væri ánægjulegt að hefja vertíð. ”Þetta lítur vel út og fiskurinn er virkilega fallegur. Þetta er falleg og krúttleg loðna,” sagði Geir Sigurpáll.

Loðnan, sem Polar Amaroq kom með, er hin fallegasta.
Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson