Vinnsla á loðnuhrognum mun hefjast í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í fyrramálið. Ljósm. Hákon Ernuson

Frystingu á Japansloðnu lauk í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á laugardaginn. Að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar rekstrarstjóra hefur vinnslan gengið einkar vel á vertíðinni. Þegar frystingunni lauk var fiskiðjuverið þrifið hátt og lágt og vinnsla á loðnuhrognum undirbúin. Að því loknu fékk starfsfólkið kærkomið vaktafrí.

Á vertíðinni hafa verið fryst 16.500 tonn af loðnu í fiskiðjuverinu. Alls hefa verið fryst 10.000 tonn af hængi og 6.500 tonn af hrygnu. Af hrygnunni er um 5.100 tonn Japansloðna.

Börkur NK er á leið til Neskaupstaðar með 2.000 tonn af loðnu sem fer til hrognavinnslu. Aflann fékk Börkur í fjórum köstum. Herbert Jónsson skipstjóri sagði að byrjað hefði verið að kasta út af Svörtuloftum en síðustu köstin tekin út af Rifi og Ólafsvík. Hann sagði jafnframt að víða hefði orðið vart við loðnu. Augljóslega væri að koma loðna vestan að og eins væri loðna austan við Vestmannaeyjar og út af Ingólfshöfða. Samkvæmt prufum, sem Barkarmenn hafa tekið af aflanum. er hlutfall hrygnu í honum 50 – 57% og er rúmlega 90% af hrygnunni búin að losa pokann. Hrognafyllingin er um 24%.

Börkur er væntanlegur til Neskaupstaðar snemma í fyrramálið og þá hefst vinnsla á hrognunum af fullum krafti.