
Vinnslu á síld í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað á þessu ári lauk sl. föstudag. Þá var lokið við að vinna 760 tonn úr Barða NK og hafist handa við að þrífa verið hátt og lágt.
Vinnsla á síld, sem veidd var austur af landinu, hófst 1. september og henni lauk 24. október. Síldin sem veiddist austur af landinu var töluvert blönduð, um 70% var norsk – íslensk og um 30% íslensk sumargotssíld. Alls veiddu Síldarvinnsluskipin tæp 21.000 tonn austur af landinu.
Vinnsla á íslenskri sumargotssíld, sem veidd var vestur af landinu, hófst 27. október og lauk sl. föstudag eða 5. desember. Síldarvinnsluskipin veiddu rúmlega 13.000 tonn af síld vestur af landinu.
Norsk-íslenska síldin var ýmist heilfryst eða flökuð en íslenska sumargotssíldin var nánast alfarið flökuð. Þá var einnig framleitt dálítið af kviðskorinni síld.
Í fiskiðjuverinu hefur að sjálfsögðu verið unnið á vöktum við vinnslu síldarinnar. Unnið var á þrískiptum vöktum út september en síðan á tvískiptum. Oddur Einarsson yfirverkstjóri segir að vinnsla síldarinnar hafi gengið afar vel. ”Á hverri vakt starfa yfirleitt 22 við framleiðsluna en síðan eru verkstjórar, starfsmenn gæðaeftirlits og viðhaldsmenn þannig að það eru um 30 á vaktinni. Þegar unnið er á tvískiptum vöktum er eðlilega meira álag á starfsfólki og þá er nauðsynlegt að gera hlé á vinnslu annað veifið svo fólk geti hvílst. Hér eru menn mjög ánægðir með vinnsluna á síldinni í ár. Það má segja að þetta hafi gengið eins og í sögu,” sagði Oddur.