Síldin sem veiðist nú er að meðaltali 360 grömm. Ljósm. Margrét Þórðardóttir

Beitir NK kom til Neskaupstaðar í fyrrakvöld með 1.000 tonn af síld. Vinnsla á farminum hófst þegar í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, sagði að síldin hefði fengist í fjórum holum í Syðri holunni á Héraðsflóanum. Jafnframt segir hann að þeir á Beiti hafi verið að veiðum í 28 tíma í veiðiferðinni.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að síldarvertíðin hafi gengið vel til þessa. “Við höfum tekið á móti 4.000 tonnum að meðtöldum aflanum sem nú er verið að vinna úr Beiti. Síldin er virkilega flott og meðalstærðin er um 360 grömm. Hingað til höfum við heilfryst síldina ásamt því að framleiða samflök og þetta hefur í reynd gengið eins og í sögu,” sagði Geir Sigurpáll.