Vilhelm Þorsteinsson EA að dæla afla um borð úr vörpu Barkar NK á makrílmiðunum. Ljósm. Ingvar Ísfeld Kristinsson

Makrílveiðin gengur misjafnlega en nú er veitt í Smugunni. Oft er veiðin ansi róleg en inn á milli koma góð skot. Skipin eru í veiðisamstarfi og Síldarvinnsluskipin þrjú, Barði NK, Beitir NK og Börkur NK, eiga í góðu samstarfi við Samherjaskipin Vilhelm Þorsteinsson EA og Margréti EA. Hverju sinni er afla allra skipanna dælt um borð í eitt þeirra sem flytur hann síðan til lands. Í gær var lokið við að landa tæplega 1000 tonnum úr Margréti EA í Neskaupstað.

Á mánudaginn kom gott skot á miðunum í Smugunni en þá fengu samstarfsskipin fjögur sem voru að veiðum samtals um 1000 tonn. Holin voru frá 200 tonnum og upp í um 320 tonn. Afla þeirra var dælt um borð í Vilhelm Þorsteinsson og kom hann til Neskaupstaðar með 1420 tonn í gærkvöldi. Eftir skotið var veiði skipanna mun rólegri og er afla þeirra nú dælt um borð í Beiti.

Anna Danuta Sochon með risamakrílinn. Makríllinn er 1,52 kg að þyngd og 52 cm að lengd. Ljósm. Katarzyna Sylvia Jagielska

Heimasíðan ræddi við Geir Sigurpál Hlöðversson, rekstrarstjóra fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, og spurði hann hvernig vinnslan gengi. ”Ég held að megi segja að vinnslan gangi ágætlega en því er ekki að leyna að vinnsla á Smugumakríl felur í sér meiri áskoranir en vinnslan á fiski sem veiddist í íslenskri lögsögu. Fiskurinn úr Smugunni er minni og viðkvæmari en sá fiskur sem veiddur var í íslensku lögsögunni og það er óneitanlega heldur erfiðara að vinna hann. Á meðan meðalvigt á fiski úr íslenskri lögsögu var 550 grömm er meðalvigtin um 450 grömm á Smugufiskinum. Í fiskiðjuverinu er fiskurinn ýmist hausaður, flakaður eða heilfrystur en það sem flokkast frá fer til mjöl- og lýsisframleiðslu. Það sem af er vertíðinni er búið að taka á móti um 12.500 tonnum af makríl til vinnslu hér í Neskaupstað og nú er verið að landa 1420 tonnum til viðbótar úr Vilhelm Þorsteinssyni,” sagði Geir Sigurpáll.

Þó svo að meðalvigt makrílsins sem veiðist í Smugunni sé 450 grömm þá koma þaðan á land býsna stórir fiskar. Sá stærsti sem starfsfólk fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar hefur séð á þessari vertíð reyndist vera 1,52 kíló að þyngd og 52 sentimetrar að lengd. Þar er um að ræða sannkallaðan risamakríl.