
Gert er ráð fyrir að sumarstoppi ljúki og vinnsla hefjist hjá Vísi í Grindavík á miðvikudag eftir viku. Flest skipin sem sjá vinnslustöðvunum fyrir hráefni eru að hefja veiðar um þessar mundir. Vestmannaey VE hélt til veiða á mánudag og Birtingur NK í gær. Línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK munu láta úr höfn í dag og það mun krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK einnig gera. Bergey VE mun hins vegar ekki halda til veiða fyrr en á sunnudag. Samkvæmt áætlun mun Páll Jónsson landa á mánudag, Birtingur á þriðjudag og Sighvatur á miðvikudag.
Andrés Óskarsson hjá Vísi segir að allt verði komið á fullt í vinnslustöðvum Vísis um miðja næstu viku og fólk muni þá koma ferskt til starfa að loknu góðu sumarfríi.