
Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson
Starfsfólk fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar í Neskaupstað var ánægt þegar fyrsta loðnan á vertíðinni var tekin til vinnslu í gær. Það var grænlenska skipið Polar Amaroq sem kom með 340 tonn sem fengust austur af landinu. Heimasíðan ræddi við Geir Sigupál Hlöðversson rekstrarstjóra fiskiðjuversins og spurði hann hvernig loðnan væri og hvernig vinnslan gengi. ”Þessi loðna er virkilega flott og hún flokkast vel. Meðalstærðin er góð en það eru um 37 stk. í kílóinu. Við erum einungis með dagvakt og í gær voru unnin um 120 tonn af farminum sem Polar Amaroq kom með. Vinnsla fer ávallt hægt af stað í upphafi vertíðar en þá er að ýmsu að hyggja. Nú gengur allt eins og í sögu og við munum klára að vinna farminn í dag. Hér í fiskiðjuverinu eru allir brosandi og kátir og menn vonast til að yfirstandandi loðnuleit gangi vel og bætt verði við þann kvóta sem þegar hefur verið gefinn út,” sagði Geir Sigurpáll.
