Veiðar og vinnsla hjá Vísi í Grindavík eru að hefjast að loknu sumarstoppi.
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Hjá Vísi í Grindavík er hefð fyrir því að stöðva veiðar og vinnslu í fjórar til sex vikur yfir sumarið. Í sumarstoppinu er bæði gert hlé á veiðum og vinnslu. Nú í ár hófst stoppið þann 9. júlí og fyrsti vinnudagur í frystihúsi og salthúsi fyrirtækisins eftir stopp verður 13. ágúst næstkomandi þannig að stoppið í vinnslunni er fimm vikur. Heimasíðan hafði samband við Pétur Hafstein Pálsson framkvæmdastjóra Vísis og spurði hann fyrst hvort ekki tæki tíma að koma öllu í gang að afloknu stoppi. ”Jú, það tekur svolítinn tíma. Skipin halda fyrst til veiða og síðan hefst vinnslan. Togarinn Jóhanna Gísladóttir GK hélt til veiða í gær og línuskipið Páll Jónsson GK mun væntanlega halda til veiða á föstudag, en Páll hefur verið í slipp. Línuskipið Sighvatur GK heldur væntanlega til veiða um 20. ágúst en hann hefur verið í vélarupptekt. Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK lætur síðan væntanlega úr höfn nú um helgina. Við gerum ráð fyrir að full framleiðsla í frystihúsinu hefjist strax 13. ágúst en það tekur nokkra daga að ná fullri framleiðslu í salthúsinu. Það tekur semsagt viku til tíu daga að fá allt í fullan gang að afloknu stoppinu en það verður óskaplega gott þegar allt verður farið að snúast af krafti á ný,” sagði Pétur.