Línuskipið Sighvatur GK. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Vísistogarinn Jóhanna Gísladóttir GK og línuskipin Páll Jónsson GK og Sighvatur GK hafa öll landað á Djúpavogi í vikunni. Jóhanna landaði 60 tonnum á sunnudaginn og var Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri sáttur við veiðina. “Við vorum að veiðum í Hvalbakshallinu og fengum þar þokkalega blöndu. Þetta var mest þorskur en einnig ufsi, ýsa og karfi. Um er að ræða fínasta fisk sem ég held að henti vel í vinnsluna,” agði Einar Ólafur. Jóhanna hélt strax til veiða út á Digranesflak að löndun lokinni.

Páll Jónsson landaði 130 tonnum á mánudaginn. Benedikt Jónsson skipstjóri sagði að 97% aflans hefði verið þorskur. ”Við byrjuðum á að taka tvær lagnir í Bakkaflóanum og síðan var haldið í suður undir Hattabúðina í Héraðsflóanum. Alls fékkst aflinn í fimm og hálfri lögn. Þorskurinn sem fékkst er mjög fínn og fallegur,” sagði Benedikt.

Sighvatur landaði síðan í gær. Aflinn var 101 tonn og mjög blandaður, mest langa, keila og þorskur. Óli Björn Björgvinsson skipstjóri var afar ánægður með túrinn. ”Menn eru ánægðir með þessa blöndu. Við fórum út frá Grindavík á fimmtudagskvöld og byrjuðum vestan við Reynisdýpið. Þar var tekin ein lögn og þar fékkst keila og langa. Síðan var haldið á Kötlugrunn og ein lögn tekin þar. Aflinn var þar svipaður. Loks voru tvær lagnir teknar í Breiðamerkudýpinu og þar fengum við löngu og þorsk. Það verður að segjast að þetta gekk alveg prýðilega og fiskurinn er virkilega góður og virðist vel haldinn,” sagði Óli Björn.