Það var nóg að gera í loðnulöndun í Neskaupstað um helgina. Myndin var tekin á laugardag þegar verið var að landa úr Polar Amaroq sem sést lengst til hægri á myndinni. Barði NK og Polar Ammassak bíða löndunar.
Ljósm. Smári Geirsson

Samfelld löndun á hrognaloðnu hefur verið í Neskaupstað yfir helgina og nóg að gera í vinnslunni. Skipin sem komu til löndunar voru Börkur NK með 1.600 tonn, Barði NK með 1.750 tonn og grænlensku skipin Polar Amaroq með 1.600 tonn og Polar Ammassak með 1.400. Það hefur gengið vel að kútta loðnuna og hreinsun og frysting hrognanna í fiskiðjuverinu hefur einnig gengið eins og best verður á kosið.

Skipin veiddu loðnuna ekki á sama stað. Börkur og Barði fengu sinn afla út af Reykjanesi en grænslensku skipin voru að veiðum á Breiðafirði. Þroski hrognanna í loðnunni sem veiddist út af Reykjanesinu var um 100% en þroski hrognanna í loðnunni sem veiddist á Breiðafirðinum um 40%. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana á Barða og Polar Amaroq. Þorkell Pétursson, skipstjóri á Barða, sagði að þeir hefðu fengið loðnuna 6 – 8 mílur út af Sandgerði og Börkur hefði verið á sömu slóðum. ”Við byrjuðum á að taka eitt prufukast á miðvikudagskvöld til að kanna hvernig loðnan væri sem þarna var á ferðinni. Í prufukastinu fengum við um 100 tonn og í ljós kom að þroski hrognanna var 100% og allar hrygnur voru búnar að losa pokann. Við fengum síðan megnið af aflanum í þremur köstum á fimmtudag. Köstin gáfu frá 500 tonnum og upp í 690 tonn. Þarna voru mjög þéttar torfur og menn þurftu að passa sig á að fá ekki of mikið í nótina. Auk þess var svolítil kvika á meðan á veiðum stóð þannig að það þurfti að fara varlega. Á sama tíma og við vorum þarna að veiðum voru skip að veiða til dæmis í Breiðafirðinum enda hafa margar loðnugöngur komið þessa vertíðina og loðnu víða að sjá,” sagði Þorkell.

Geir Zoёga, skipstjóri á Polar Amaroq, sagði að staða loðnunnar sem veiddist á Breiðafirðinum væri allt önnur en þeirrar loðnu sem veiddist við Reykjanesið. ”Við fengum aflann, 1.600 tonn, í tveimur köstum norður af Ólafsvík og Polar Ammassak fékk sinn afla á sömu slóðum. Hrognin í loðnunni þarna eru komin mun skemmra í þroska en hrognin í loðnunni sem veiðist við Reykjanesið. Það bendir allt til að þarna sé um vestangöngu að ræða. Það var hins vegar mikið af hrognum í aflanum hjá okkur eða 18%. Það þykir býsna hátt hlutfall,” sagði Geir.

Börkur, Polar Amaroq og Barði hafa þegar haldið til veiða á ný en verið er að landa úr Polar Ammassak. Bræla hefur verið á loðnumiðunum alla helgina og engin veiði. Vænta má þess að veiðar geti hafist á ný í dag.