Vestmannaey VE kemur til hafnar. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Ísfisktogarinn Vestmannaey VE kom til löndunar í Eyjum á þriðjudaginn en landað var úr skipinu í gær. Þetta var fyrsta veiðiferð Vestmannaeyjar að afloknu fimm vikna stoppi. Heimasíðan ræddi við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra og spurði fyrst hve langur túrinn hefði verið. “Hann var ekki nema 50 tímar. Við fórum út á sunnudag og komum inn með smekkfullt skip á þriðjudag. Þetta var virkilega flottur túr. Við fórum rakleiðis á Pétursey og fylltum skipið af ýsu.
Svo einfalt var það. Veðrið var gott. Það var sumarveður í einn dag og síðan kom hálfgert haustveður. Eftir þennan túr og að afloknu löngu stoppi er maður ekki alveg búinn að átta sig á stöðunni á miðunum. Ég hef þó á tilfinningunni að akkúrat núna sé heldur minna af þorski en á sama tíma í fyrra. Suðausturlandið kemur væntanlega fljótlega sterkt inn en síldin er heldur seint á ferðinni og það hefur áhrif. Annars eru mörg skip stopp núna og ekki álag á veiðistöðunum. Maður vonar bara að þróunin verði jákvæð og engin ástæða til að ætla annað. Við munum halda til veiða á ný í dag og þá verður stefnan sett á karfamið. Líklega verður farið vestur á Fjöll eða í Skerjadýpið,” segir Birgir Þór.