Afla Beitis NK dælt um borð í Barða NK á makrílmiðunum. Ljósm. Ingvar Ísfeld Kristinsson

Makrílvinnsla gengur vel í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Lokið var við að landa 770 tonnum úr Barða NK í morgun. Beitir NK er síðan væntanlegur í dag með 1000 tonn og heyrði heimasíðan í Sigurði Valgeiri Jóhannessyni skipstjóra og spurði um gang veiðanna. “Við erum núna að koma með mjög fallegan fisk. Megnið af aflanum fékkst í gær og voru skipin í samstarfinu að fá ágæt hol en einungis var dregið í þrjá til sex tíma. Fiskurinn er stór eða yfir 600 grömm að meðalþyngd og í honum er lítil áta. Hér er örugglega um að ræða úrvalshráefni fyrir vinnsluna. Annars hefur veiðin að undanförnu verið töluvert hark. Oft finnst enginn fiskur en síðan birtist hann í litlum blettum og þá kemur veiðiskot. Þetta snýst um að vera á réttum stað á réttum tíma. Það er eitt sem við makrílsjómenn getum ekki kvartað yfir og það er veðrið. Það hefur verið gott veður á miðunum í nánast allt sumar. Síðan er það athyglisvert að nánast öll veiðin hefur átt sér stað innan íslenskrar lögsögu. Það er jákvætt og allt annað en spáð var áður en vertíðin hófst. Svo rætt sé um allt annað þá verðum við varir við töluvert af síld hér austur af landinu. Á landleiðinni núna fórum við yfir góðar síldartorfur á Glettinganesflakinu og það er fallegt að sjá,” segir Sigurður Valgeir.