Landað úr Gullver NS á Seyðisfirði í gær. Ljósm. Ómar Bogason

Ísfisktogarinn Gullver kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gærmorgun með fullfermi að aflokinni veiðiferð sem stóð í sex daga. Afli skipsins var 113 tonn, þar af var 80 tonn þorskur, 20 karfi og 10 ýsa. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði hvort menn væru ekki sáttir við túrinn. „Jú, það er ekki hægt annað en vera þokkalega sáttur. Við byrjuðum túrinn í ufsaleit í Berufjarðarálnum en það kom lítið út úr því eins og oft áður. Síðan vorum við lengst af í Litladýpinu og við Fótinn en enduðum í karfa í Rósagarðinum. Veðrið var gott allan túrinn og ekki yfir nokkrum sköpuðum hlut að kvarta. Þetta er fyrsti túr Gullvers að lokinni vélarupptekt í Færeyjum en skipið var frá veiðum í um mánaðartíma. Það er gaman að byrja veiðarnar vel eftir svo langt hlé og fiskurinn sem fékkst er afskaplega flottur og fallegur,“ segir Hjálmar Ólafur.

Gullver hélt á ný til veiða síðdegis í gær.