Beitir NK siglir inn Norðfjörð í sumarblíðunni með rúmlega 1.300 tonn af fallegum makríl um borð. Ljósm. Andri Gunnar Axelsson

Beitir NK kom í fyrrakvöld til Neskaupstaðar með rúmlega 1.300 tonn af makríl og hófst vinnsla úr honum strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Töluverð áta er í fiskinum en engu að síður er hann góður til vinnslu, bæði stór og fallegur. Fiskurinn er hausaður og flakaður í fiskiðjuverinu. Gert er ráð fyrir að vinnslu úr Beiti ljúki síðdegis í dag.

Vilhelm Þorsteinsson EA er á landleið til Neskaupstaðar með tæp 1.500 tonn. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum er aflinn í honum töluvert síldarblandaður.

Veiðin hefur verið allmisjöfn að undaförnu. Í gærmorgun var dælt rúmlega 700 tonnum um borð í Vilhelm en þar var um að ræða afla Barkar NK, Barða NK og Margrétar EA auk eigin afla Vilhelms. Í morgun var síðan dælt tæplega 500 tonnum um borð í Vilhelm. Skipin hafa verið að færa sig austar en þau hafa verið en þar eru hitaskil í sjónum sem fiskurinn leitar í. Þó svo að makrílaflinn að undanförnu hafi verið misjafn er ekki ástæða til að kvarta á meðan vinnsla helst samfelld og veiðin fer fram innan íslenskrar lögsögu.

Heimasíðan ræddi við Sigurð Valgeir Jóhannesson skipstjóra á Beiti og spurði hann út í gang veiðanna. “Fiskurinn hérna innan íslensku lögsögunnar myndar litla bletti eða torfur og það skiptir öllu máli að hitta á slíka bletti. Vandinn er sá að fiskurinn sést illa á tækjum og það er mikil ferð á honum þannig að veiðiárangur er oft spurning um heppni. Vonandi getum við verið innan íslenskrar lögsögu fram eftir mánuðinum. Í fyrra lauk veiði í lögsögunni í lok júlí og eftir það var veitt í Smugunni. Síðustu árin hefur ágúst verið besti mánuðurinn á makrílvertíðinni en þá hefur yfirleitt verið um Smuguveiðar að ræða. Til dæmis var góð veiði í Smuginni í ágúst í fyrra,” segir Sigurður.