Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði í Neskaupstað í gær. Ljósm. Smári Geirsson

Vestmannaeyjaskipin, Bergur VE og Vestmannaey VE, lönduðu bæði fullfermi í Neskaupstað í gær. Aflinn var mest þorskur en einnig töluvert af ufsa og dálítið af ýsu. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði þá hvernig túrinn hefði gengið fyrir sig. Jón Valgeirsson á Bergi sagði að þeir hefðu hafið veiðar á Síðugrunni. “Síðan var kíkt á Ingólfshöfðann en þaðan var strauið tekið austur. Við byrjuðum þar í Hvalbakshallinu en síðan var farið á Örvæntinguna og þar var ágætis veiði. Komið var til hafnar í Neskaupstað á laugardag,” segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að þeir hefðu verið á svipuðu róli og Bergur í túrnum. “Við hófum veiðar á Síðugrunni og síðan voru tekin tvö hol á Ingólfshöfða. Þá var tekið eitt hol í Sláturhúsinu og eitt á Lónsbugtinni. Við enduðum síðan í ágætri veiði í Hvalbakshallinu og á Örvæntingu. Það er mikið æti hér fyrir austan, bæði síld og kolmunni. Fiskurinn er í ætinu og þetta er fallegasti fiskur,” segir Birgir Þór.

Skipstjórarnir segjast reikna með að fiska mikið fyrir austan land næstu mánuði og þá verði líklega að mestu landað í Neskaupstað. Þó munu bæði skipin landa í Eyjum síðar í þessari viku.