Í fyrrinótt þegar ísfisktogarinn Bergur VE var á landleið til Vestmannaeyja af Austfjarðamiðum var ákveðið að taka lokahol túrsins á Pétursey. Þegar trollið var síðan tekið upp kom í ljós að því fylgdu hliðar úr gámi sem augljóslega var kominn frá Eimskip. Fjölmiðlar hafa sagt frá þessu en heimasíðan hafði samband við Jón Valgeirsson skipstjóra og spurði hann hvort þetta hefði ekki verið óvæntur afli. “Nei, það er varla hægt að segja það. Það eru gámar víða á hafsbotni og ætti ekki að koma neinum á óvart miðað við hvernig skipin sem flytja þá eru hlaðin. Fyrir okkur eru þessir gámar auðvitað alger ófögnuður. Þetta var stærsti hlutinn af hliðum gámsins sem kom upp með trollinu en við vorum heppnir að því leyti að veiðarfærið virðist ekki hafa skemmst við þetta. Í vor voru fréttir af því að skip hefði misst eina 15 gáma í sjóinn úti fyrir suðurströndinni og voru einhverjir að giska á að þessi gámur væri einn af þeim. Það getur hins vegar ekki verið því skipið missti gámana á Síðugrunni sem er 30 mílum austar en sá staður sem við fengum gámaleifarnar á. Við komum að sjálfsögðu með þetta drasl í land og þar verður því fargað. Ég hef spurnir um að skip hafi lent í gámi á þessum slóðum áður og það gæti hafa verið sami gámurinn,” segir Jón.

Myndirnar sem fylgja af leifum gámsins sem komu upp með trollinu eru teknar af Friðriki Sigmarssyni stýrimanni á Bergi.