Löndun úr Sighvati GK í heimahöfn. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa fiskað ágætlega að undanförnu. Skipin hafa ýmist verið að þorskveiðum fyrir austan land eða lagt áherslu á að fá blandaðan afla suður af landinu. Páll Jónsson landaði á Djúpavogi sl. mánudag og Sighvatur er að landa í Grindavík í dag. Heimasíðan sló á þráðinn til skipstjóranna.

Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að túrinn hefði verið ágætur en skipið var að þessu sinni að veiðum suður af landinu. “Aflinn í túrnum var 103 tonn og hann var blandaður. Í aflanum var þorskur, langa, ýsa, keila og fleiri tegundir. Þorskurinn sem við fengum var sérstaklega vænn og flottur. Meðalvigt hans var á milli 8,5 og 9 kíló. Í túrnum voru teknar fjórar lagnir. Fyrst var lagt á Síðugrunni en síðan í Breiðamerkurdýpinu. Veður var þokkalega gott en þó fengum við brælu í síðustu lögninni,” sagði Jónas Ingi.

Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var alsæll með túrinn. ”Að þessu sinni vorum við í þorski fyrir austan. Aflinn var 139 tonn og þarna er um alvörufisk að ræða. Lagnirnar í túrnum voru fjórar. Við byrjuðum við Keikó í Héraðsflóanum en aflinn var ekkert sérstakur í fyrstu lögninni. Þá færðum við okkur suður fyrir Keikó og þar var sannast sagna algjört mok. Í þriðju lögninni fengum við 157 kör sem er með því mesta sem ég hef upplifað. Um er að ræða fallegasta þorsk sem hentar afar vel til vinnslu. Sannast sagna gat þetta ekki gengið mikið betur og hér um borð eru menn sælir. Í næsta túr verður væntanlega lögð áhersla á blandaðan afla,” sagði Óli Björn.