Karfa landað í Eyjum. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Vestmannaey VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi að aflokinni stuttri veiðiferð. Aflinn var rúm 40 tonn af karfa sem fékkst á Melsekk vestan við Reykjaneshrygginn eða um 70 – 80 mílur vestsuðvestur úr Reykjanesinu. Heimasíðan ræddi við Egil Guðna Guðnason skipstjóra og spurði hvernig hefði gengið. “Þetta gekk afskaplega vel. Við vorum í um það bil sólarhring að fá skammtinn sem við máttum taka. Það var nefnilega veitt eftir pöntun og karfinn mun meðal annars fara á Þýskaland. Veðrið var ágætt á útleiðinni og á miðunum en á landleiðinni var bölvaður fræsingur. Nú er Vestmannaey komin í fjögurra vikna sumarstopp. Í stoppinu verður ýmsu viðhaldi sinnt í skipinu. Ég held að áhöfnin sé bara spennt fyrir fríinu og sumir munu fljúga til útlanda með fjölskyldunni strax í dag,” segir Egill Guðni.