Vestmannaey VE kemur til hafnar. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Áhafnir Vestmannaeyjaskipanna Bergs VE og Vestmannaeyjar VE hafa sótt Slysavarnaskóla sjómanna að undanförnu. Áhafnirnar sækja skólann á fimm ára fresti og nú fór kennsla fram í Reykjavík en fyrir fimm árum fór hún fram í Eyjum. Að lokinni Reykjavíkurdvöl áhafnar Bergs hélt hann til veiða sl. fimmtudag og landaði síðan fullfermi í Eyjum á sunnudaginn. Strax að lokinni löndun var haldið til veiða á ný og reynt við karfa og mun Bergur landa í dag.

Vestmannaey landaði í Eyjum sl. miðvikudag, hélt á ný til veiða á fimmtudag og landaði á sunnudaginn. Áhöfnin fór síðan til Reykjavíkur og sótti Slysavarnaskólann í gær. Gert er ráð fyrir að Vestmannaey haldi á ný til veiða næstkomandi fimmtudag.

Afli beggja skipa í síðustu veiðiferðum hefur einkum verið ýsa og þorskur en nú á að leggja áherslu á aðrar tegundir.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, er afar ánægður með veruna í Slysavarnaskólanum.” Við þurfum að fara í endurmenntun hvað varðar öryggismálin á fimm ára fresti og það er nauðsynlegt. Annars erum við reglulega með öryggisæfingar um borð og framkvæmum þær samkvæmt Öldu sem er öryggiskerfi. Þetta öryggiskerfi hefur reynst afar vel og tryggir að þessum málum sé sinnt með skipulegum hætti. Þegar við vorum á landleið á sunnudaginn gafst okkur kostur á að taka æfingu með þyrlu Landhelgisgæslunnar og það var þarft. Menn verða að sinna öryggismálunum af alvöru og það er aldrei of mikið gert af því að hyggja að þeim, segir Birgir Þór.