Frá Norðfjarðarhöfn í morgun. Verið að ljúka við að landa úr Beiti NK og Börkur NK kominn með 1100 tonn af gæðaloðnu.
Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Börkur NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1100 tonn af loðnu. Byrjað var að vinna úr honum um hádegi en þá var lokið við að vinna 900 tonn sem Beitir NK kom með í gær. Heimasíðan ræddi stuttlega við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra á Berki og spurði út í veiðiferðina. „Við fengum aflann í fjórum köstum í Meðallandsbugtinni. Tókum þrjú köst í gær og eitt 200 tonna kast á mánudagskvöld. Þetta er fínasta loðna; hrygnuhlutfall er gott, 17% hrognafylling og átan einungis 0,3. Þetta hlýtur að vera gott í Japanann. Það var ekki mikið að sjá af loðnu þarna í bugtinni í gær. Það var mun meira að sjá á mánudaginn. En þarna eru öll skipin að berja á þessu. Ég tel að þetta sé alls ekki fremsti hluti loðnugöngunnar og það eigi eftir að gjósa upp loðna í Háfadýpinu eða við Eyjar á næstu dögum. Annars er loðna mjög víða, meðal annars hérna fyrir austan,“ segir Hjörvar.