Nót Eriku í viðgerð í NeskaupstaðGrænlenska loðnuskipið Erika kom til Neskaupstaðar
aðfaranótt sunnudags með 900 tonn af loðnu sem landað var í mjöl- og
lýsisvinnslu. 
Aflinn fékkst bæði í nót
og troll en hvalir á miðunum ollu skipverjum miklum erfiðleikum.

Geir Zoëga, skipstjóri á Eriku, lýsir veiðiferðinni svo:

„Í upphafi veiðiferðar fiskuðum við í nótina en eftir að
vera búnir að fá 7 hnúfubaka samtals í hana var skipt yfir á trollið.  Það var ekki um annað að ræða, enda nótin
vægast sagt illa farin.  Í einu kastinu
lokuðust 5 hvalir inni í nótinni.  Þrír
þeirra fóru út á meðan á snurpingu stóð og skyldu eftir sig stór göt.  Tveir voru hins vegar eftir og rifu pokann
afar illa.“