Frá Norðfjarðarhöfn í gær. Verið að landa síld úr Berki NK og skipa út frystum vörum úr frystigeymslunum.
Ljósm. Þorgeir Baldursson

Að sögn Heimis Ásgeirssonar, verkstjóra í frystigeymslum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, hefur framleiðsla verið mikil í fiskiðjuverinu að undanförnu og því brýnt að skipa út frystum vörum reglulega. Geymslurnar rúma 18.000 tonn og nú er í þeim fyrst og fremst makríll og síld auk þess sem þar eru enn um 3.000 tonn af loðnu. Í næstu viku eru ráðgerðar miklar útskipanir. Heimir segir að það verði handagangur í öskjunni hjá starfsmönnum frystigeymslanna þegar þær fara fram. „Það var skip í gær sem tók 1.200 tonn og það er von á þremur skipum í næstu viku og þau munu taka um 7.000 tonn. Þessi skip munu fara með farmana til Úkrainu, Portúgals og Eystrasaltslandanna. Þetta verður býsna stíft. Annars fara 500-600 tonn frá okkur í viku hverri í gámum í skip frá Reyðarfirði. Það er auðvitað mikilvægt fyrir okkur að losa úr geymslunum því síldarvertíð stendur yfir í kjölfar makrílvertíðar og mikið framleitt. Þá er Hákon EA að koma með 700 tonn af frystum makríl og síld á morgun. Hjá okkur er að sjálfsögðu ávallt mikið að gera þegar framleiðsla er mikil í fiskiðjuverinu,“ segir Heimir.