Blængur NK á miðunum. Ljósm. Bergþór Gunnlaugsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til löndunar í Neskaupstað á miðvikudagskvöld. Afli skipsins var 830 tonn upp úr sjó og var aðallega um ufsa og karfa að ræða. Alls voru um borð í skipinu um 20.500 kassar af frystum fiski þegar í land var komið og er það nokkuð gott á 27 dögum. Verðmæti aflans er um 300 milljónir króna. Sigurður Hörður Kristjánsson skipstjóri var sáttur við veiðiferðina. „Við fengum gott af ufsa í byrjun túrsins og það var mikilvægt. Við veiddum helst á Vestfjarðamiðum, einkum á Halanum. Túrinn var síðan restaður í Skerjadýpinu. Þetta var í reyndinni ágætistúr eins og þeir hafa verið hjá Blængi að undanförnu. Skipið stoppar ekki lengi í landi enda eru á því tvær áhafnir. Farið verður út í kvöld,“ segir Sigurður Hörður.