Aðalfundur Síldarvinnslunnar var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og einnig rafrænt sl. fimmtudag. Á fundinn var mætt fyrir 89,4% atkvæða.

Á fundinum fluttu Þorsteinn Már Baldvinsson stjórnarformaður og Gunnþór B. ingvason forstjóri ræður. Fjölluðu þeir um stöðuna í íslenskum sjávarútvegi og gerðu ítarlega grein fyrir starfsemi Síldarvinnslunnar á rekstrarárinu 2023.

Aðalfundurinn samþykkti ársreikning félagsins og samþykkti tillögu um greiðslu arðs. Samþykkt var að arðgreiðsla vegna rekstrarársins 2023 verði 1,73 kr. á hlut eða 3.200,6 milljónir króna. Eins samþykkti fundurinn starfskjarastefnu.

Í stjórn félagsins voru eftirtalin kjörin: Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldvinsson. Varamenn voru kjörin þau Arna Bryndís Baldvins McClure og Ingi Jóhann Guðmundsson.

Stjórn félagsins kom saman strax að aðalfundi loknum og var þá Þorsteinn Már Baldvinsson kjörinn stjórnarformaður og Guðmundur Rafnkell Gíslason varaformaður.

Á aðalfundinum vsr ssmþykkt að endurskoðandi félagsins yrði áfram PricewaterhouseCoopers (Vignir Rafn Gíslason).

Að lokum skal þess getið að þau Arna Bryndis Baldvins McClure, Guðmundur Kjartansson og Jakob Bjarnason voru kjörin í endurskoðunarnefnd og eins var samþykkt að framlengja heimild stjórnar til að kaupa eigin hluti í félaginu til næstu átján mánaða.