Vestmanney VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum í gær.
Ljósm. Guðmundur Alfreðsson

Vestmannaeyjaskipin Bergur VE og Vestmannaey VE lönduðu bæði fullfermi í Eyjum í gær. Afli Bergs var mest þorskur og ýsa en afli Vestmannaeyjar var blandaðri; þorskur, ýsa, ufsi og langa. Það tók innan við sólarhring hjá skipunum að fá í sig. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og létu þeir vel af sér. Jón Valgeirsson á Bergi sagði að þeir hefðu verið að veiðum í Háfadýpinu. “Við vorum hérna við bæjardyrnar og það hefur verið mokveiði sitt hvoru megin við Eyjarnar. Fiskurinn heldur sig innarlega en það er miklu minna að fá utar. Þetta er hinn fallegasti fiskur sem fæst, stór og góður. Að undanförnu hefur hreinlega verið blússandi veiði og ekki yfir neinu að kvarta,” segir Jón.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að veiðin hafi gengið eins og í sögu. “Við vorum í Háfadýpinu og á Hálshrauni og veiðin gekk afar vel. Staðreyndin er sú að það var þarna aðgæsluveiði. Menn geta ekki verið annað en sáttir við aflabrögðin og fiskurinn sem fæst er hinn ágætasti,” segir Birgir Þór.

Bæði skip héldu til veiða strax að lokinni löndun í gær og munu þau leggja áherslu á ýsu- og ufsaveiði að þessu sinni.