Út er komin ævisaga Magna Kristjánssonar skipstjóra frá Neskaupstað. Hann var árum saman skipstjóri á bátum Síldarvinnslunnar m.a. á fyrsta skuttogara Íslendinga, Barða. Í bókinni, sem Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku skrifar, segir Magni frá mörgu eftirminnilegu, svo sem:
 
– uppvexti í Neskaupstað
– sveitadvöl og síldveiðiævintýri í Mjóafirði
– sérkennilegum jólagjöfum hans og Dadda Dóra
– áflogum um borð í síðutogara
– fyrsta skuttogaranum
– Jóni gaur
– ríflega 50 daga siglingu heim frá Japan
– torkennilegum kapli á grunnslóðinni
– æsilegum átökum í Þorskastríðinu
– uppreisn á loðnuflotanum
– þróunarstarfi á Grænhöfðaeyjum
– örnefnum á hafsbotni
– eftirminnilegum fundi hjá Farmanna- og fiskimannasambandinu
– sögulegum hreindýraveiðum
– sviptingum í pólitík og mörgu fleiru.
 
Magni segir frá af hispursleysi og hreinskilni. Hann var mikill áhugamaður um kolmunnaveiðar, kenndi sjómönnum ýmis fræði, kom á fót söfnum í heimabyggð sinni og svo mætti lengi telja. Þá tóku Norðmenn feil á honum og sjónvarpshetju sinni, sjálfum Fleksnes, og var hann ekkert að leiðrétta þá.
 
Magni var stýrimaður á Berki elsta en síðan skipstjóri á skuttogaranum Barða á árunum 1970-1973. Hann tók síðan við skuttogaranum Bjarti árið 1973 og sat þar í skipstjórastóli til 1976. Lengst var síðan Magni skipstjóri á Stóra-Berki eða á árunum 1976-1989.