Vilhelm Þorsteinsson EA er að landa 1.260. tonnum af síld í Neskaupstað í dag. Ljósm. Smári Geirsson

Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1.260 tonn af síld sem nú er unnin í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Guðmund Þ. Jónsson skipstjóra og sagði hann að túrinn hefði gengið vel. „Við fengum þennan afla í þremur holum út af Héraðsflóanum. Þetta er sama fallega síldin en heldur smærri en hún var fyrr á vertíðinni. Þessi síld er 330-350 gr. og í þessu er um 15% íslensk sumargotssíld. Þessi síldarvertíð hefur verið afar flott, það hefur gengið vel að veiða og það hefur verið stutt á miðin. Mér finnst þó síldin að meðaltali hafa verið heldur smærri en í fyrra. Nú eigum við bara eftir að veiða ein 1.500 tonn þannig að það er að líða að lokum þessarar vertíðar hjá okkur, en það eru svo sannarlega næg verkefni framundan,“ segir Guðmundur.

Heimasíðan sló einnig á þráðinn til Runólfs Runólfssonar, skipstjóra á Bjarna Ólafssyni AK en skipið var að síldveiðum norðan í Glettinganesgrunni. „Við erum komnir með 750 tonn og þetta er sama fína síldin og verið hefur. Holin hjá bátunum eru dálítið misjöfn. Síldin poppar upp á blettum og spurningin er alltaf hvernig menn hitta á blettina. Það er alls ekki hægt að kvarta undan veiðinni á þessari vertíð. Hún hefur verið sallagóð, en nú fer að líða að vertíðarlokum,“ segir Runólfur.