Löndun að ljúka úr Beiti NK í morgun. Ljósm. Hákon ErnusonLöndun að ljúka úr Beiti NK í morgun. Ljósm. Hákon ErnusonBeitir NK kom til Neskaupstaðar í gær og landaði 3.003 tonnum af kolmunna sem fékkst í færeysku lögsögunni. Heimasíðan hafði samband við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra á Berki NK í morgun og sagði hann að það væri ágætis kropp í kolmunnanum. Er Börkur kominn með 850 tonn og er það sólarhringsafli. Aflinn fékkst í tveimur holum. Bjarni Ólafsson AK er á miðunum og við það að fylla.
 
Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri í Neskaupstað, segir að kolmunninn sé ágætt hráefni fyrir fiskimjölsverksmiðjurnar. „Aflinn er vel kældur um borð í skipunum og skipin fá í sig á tiltölulega stuttum tíma. Aflinn er því nokkuð ferskur þegar honum er landað, en fiskurinn er hins vegar heldur magur á þessum árstíma,“ segir Hafþór.