Landað úr Blængi NK. Ljósm. Smári Geirsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í morgun að loknum þrjátíu daga túr. Afli skipsins er 742 tonn upp úr sjó að verðmæti 280 milljónir króna. Unninn afli telur rúmlega 21 þúsund kassa. Helstu tegundir sem fengust voru ýsa, gulllax, gullkarfi, ufsi og þorskur.

Heimasíðan ræddi við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. “Við vorum að veiðum frá Austfjarðamiðum og suður með landinu og alveg norður á Hala. Það var semsagt víða farið í þessum þrjátíu daga túr en þó fórum við ekki hringinn. Veður var býsna misjafnt. Fyrstu tvær vikurnar einkenndust af brælum en síðan breyttist veðrið og var ágætt eftir það. Menn eru ágætlega sáttir við túrinn en staðreyndin er sú að fiskurinn heldur sig í ríkum mæli innan línu þannig að við, sem þurfum að veiða utan hennar, erum ekki að gera það jafn gott og þau skip sem veiða á grunnslóðinni. Það er okkur ekki hagstætt þegar fiskurinn heldur sig svona grunnt og mann grunar að hér hafi loðnuleysið áhrif,” segir Bjarni Ólafur.

Gert er ráð fyrir að Blængur haldi á ný til veiða annað kvöld og þá skal reynt við grálúðu.