Gullver NS landaði fínasta fiski á Seyðisfirði í gær. Ljósm. Ómar Bogason

Gullver NS landaði rúmlega 107 tonnum í heimahöfn á Seyðisfirði í gær. Aflinn var mest þorskur eða um 85 tonn og síðan um 20 tonn af ýsu. Haldið var til veiða í ný síðdegis. Heimasíðan ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði hvernig veiðiferðin hefði gengið. „Hún gekk nokkuð vel. Við vorum mest að fiska við Fótinn, frá Örvæntingu og norður á Herðablað. Það þurfti að elta fiskinn talsvert á svæðinu en það var góð veiði nánast allan tímann. Fiskurinn sem þarna fékkst var hinn fínasti. Við fórum út fljótlega eftir löndin því við vildum hefja veiðar áður en brældi, en hann spáði hundleiðinlegu veðri,“ segir Hjálmar Ólafur.

Yfirstandandi veiðiferð hjá Gullver er hin síðasta áður en haldið verður í rall.