Hinn nýji Bjarni Ólafsson AK   Ljósm. Hákon ErnusonHinn nýji Bjarni Ólafsson AK. Ljósm. Hákon ErnusonBjarni Ólafsson AK er á landleið úr sinni fyrstu veiðiferð eftir að Runólfur Hallfreðsson ehf. á Akranesi eignaðist skipið. Aflinn er góður, fullfermi af kolmunna eða um 2000 tonn, sem fékkst í færeysku lögsögunni. Þegar heimasíðan hafði samband við Gísla Runólfsson skipstjóra í morgun var skipið á siglingu norður með Færeyjum í blíðuveðri. „Þessi fyrsti túr gekk frábærlega og reyndar vonum framar,“ sagði Gísli glaður í bragði. „Skipið er frábært og uppfyllir allar okkar óskir. Ég held að áhöfnin sé alsæl. Við lentum bæði í brælu og blíðu og það er ljóst að þetta skip er sjóborg. Við fengum aflann í sex holum sem gáfu á bilinu 200 til 500 tonn og allur búnaður um borð reyndist vel. Báturinn er dálítið hlaðinn með fullfermi, en það er ekki til skaða. Væntanlega verðum við í Neskaupstað í fyrramálið ef allt gengur eðlilega. Við fiskuðum svipað og skip eins og Börkur og Beitir og ég er sáttur þegar við fáum álíka afla og norðfirsku snillingarnir,“ sagði Gísli að lokum og hló dátt.