Börkur NK að landa norsk-íslenskri síld í fiskiðjuver Síldarvinnslunnar.
Ljósm. Þorgeir Baldursson

Yfirstandandi ár er metár í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Frá því í júní hefur verið nánast samfelld vinnsla á þrískiptum vöktum og frá þeim tíma hefur verið landað rúmlega 60 þúsund tonnum af makríl og síld. Fyrr á árinu höfðu verið unnin 10 þúsund tonn af loðnu þannig að samtals hefur verið tekið á móti yfir 70 þúsund tonnum af uppsjávarfiski til vinnslu í fiskiðjuverinu á árinu. Enn berst hráefni og er Börkur NK nú að landa 1.360 tonnum af norsk-íslenskri síld en á undan honum landaði Bjarni Ólafsson AK 1.100 tonnum. Fyrra metár hjá fiskiðjuverinu var árið 2012 en þá tók það á móti 63 þúsund tonnum til vinnslu.

Heimasíðan ræddi við Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu, og spurði hann fyrst hvort hann væri ekki sáttur við árið. „Jú, svo sannarlega. Það hefur í reyndinni allt gengið eins og í sögu. Við höfum frábært starfsfólk og síðan hafa veiðarnar gengið vel. Veiðarnar eru vel skipulagðar þannig að við erum ávallt að vinna ferskan og góðan fisk. Nú er einungis einn farmur af norsk-íslenskri síld eftir að koma og síðan verður hafist handa við að veiða og vinna íslenska sumargotssíld. Síðan er risaloðnuvertíð framundan og þá þurfa hjólin að snúast hratt. Oft er þó áta í loðnunni á þessum árstíma og því mun loðnufrysting kannski ekki hefjast fyrr en eftir áramótin. Í okkar iðnaði skiptir öllu máli að veiðarnar og vinnslan séu skipulögð heildstætt. Þegar það er gert næst góður árangur eins og við erum að upplifa núna,“ segir Jón Gunnar.