Gullver NS heldur til veiða. Ljósm. Ómar Bogason

Hinn 10 ágúst sl. hófst vinnsla í frystihúsi Síldarvinnslunnar á Seyðisfirði að afloknu sumarfríi. Ómar Bogason rekstarstjóri segir að allt sé komið í fullan gang og að starfsfólk hafi skilað sér vel úr fríinu.

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til löndunar sl. laugardag og var afli hans 109 tonn. Uppistaða aflans var þorskur og ýsa. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að bongóblíða hafi verið allan túrinn. „Það var ágætis kropp í þessum túr. Mest fengum við af þorski, svolítið af ýsu og lögð var áhersla á karfa í restina. Við byrjuðum í þorski á Langabanka, fórum síðan í Hvalbakshallið í þorsk og ýsu og einnig veiddum við í Lónsdýpinu og á Stokksnesgrunni. Loks var farið í karfa í Berufjarðarálnum. Það hefur ekki verið sérstaklega mikið af fiski nú í ágústmánuði hér fyrir austan en þetta kroppast samt ágætlega. Nú eru bara tveir túrar eftir af þessu kvótaári sem hefur verið ágætt. Það sem er sérstakt við þetta kvótaár er tíðarfarið en það hefur verið einstaklega ljúft. Veturinn var góður og eins og allir hér fyrir austan vita hefur sumarið verið hreint yndislegt bæði á sjó og landi,“ segir Þórhallur.

Gullver hélt á ný til veiða á sunnudagskvöld.