Ánægð leikskólabörn með starfsmannastjóranum Hákoni Ernusyni.
Ljósm. Smári Geirsson

Í morgun komu börn úr elstu deild Leikskólans Eyrarvalla í Neskaupstað í heimsókn á skrifstofur Síldarvinnslunnar. Hákon Ernuson starfsmannastjóri tók á móti þeim og leysti þau síðan út með gjöfum. Öll börnin fengu brúsa sem halda bæði köldu og heitu og verða brúsarnir notaðir í leikskólanum. Heimsóknin var einstaklega ánægjuleg og mátti sjá bros á hverju andliti á meðan á henni stóð.